Electrolux ENC8MD18S User Manual page 87

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
• Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið
er fært vegna þess að það er þungt.
Notaðu alltaf öryggishanska og lokaðan
skóbúnað.
• Gakktu úr skugga um að að loft geti flætt í
kringum heimilistækið.
• Við fyrstu uppsetningu eða eftir að
hurðinni hefur verið snúið skal bíða í að
minnsta kosti 4 klukkustundir áður en
heimilistækið er tengt við rafmagn. Þetta
er til að olían nái að flæða aftur í
þjöppuna.
• Áður en þú framkvæmir einhverjar
aðgerðir á heimilistækinu (t.d. snýrð við
hurðinni) skaltu taka klóna úr
rafmagnsinnstungunni.
• Ekki setja heimilistækið upp nálægt
hitagjöfum (ofnum) eða eldavélum,
bökunarofnum eða helluborðum, nema
annað sé tekið fram í leiðbeiningum um
uppsetningu.
• Ekki hafa heimilistækið berskjaldað
gagnvart rigningu.
• Ekki setja heimilistækið upp þar sem það
verður fyrir beinu sólarljósi.
• Ekki setja þetta heimilistæki upp á
svæðum þar sem er of mikill raki eða of
kalt.
• Þegar þú færir til heimilistækið, skaltu lyfta
brúninni að framan til að koma í veg fyrir
að þú rispir gólfið.
• Heimilistækið inniheldur poka af þurrkefni.
Þetta er ekki leikfang. Þetta er ekki
matvara. Vinsamlegast fargaðu því
samstundis.
2.2 Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN!
Hætta á eldi og raflosti.
AÐVÖRUN!
Þegar heimilistækið er staðsett skaltu
tryggja að rafmagnssnúran sé hvorki
klemmd né skemmd.
AÐVÖRUN!
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
• Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
• Gakktu úr skugga um að færibreyturnar á
merkiplötunni séu samhæfar við
rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
• Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem ekki
veldur raflosti.
• Gættu þess að valda ekki skaða á
rafmagnsíhlutum (t.d. rafmagnskló,
rafmagnssnúru, þjöppu). Hafðu samband
við viðurkennda þjónustumiðstöð eða
rafvirkja til þess að skipta um
rafmagnsíhluti.
• Rafmagnssnúran þarf að vera fyrir neðan
rafmagnsklóna.
• Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
• Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
2.3 Notkun
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum, bruna, raflosti eða
eldsvoða.
Heimilistækið inniheldur eldfimt gas,
ísóbútan (R600a), náttúrulegt gas, sem er
mjög umhverfisvænt. Gættu þess að valda
ekki skaða á kælirásinni sem inniheldur
ísóbútan.
• Breytið ekki eiginleikum heimilistækisins.
• Það er harðbannað að nota þessa
innbyggðu vöru sem frístandandi tæki.
• Ekki láta rafmagnstæki (s.s. ísgerðarvélar)
í tækið nema það sé tekið fram af
framleiðanda að þau þoli það.
• Ef rafrásir kælibúnaðarins skemmast skal
gæta þess að það sé enginn logi eða
kveikjugjafar í herberginu. Loftræstu
herbergið.
• Ekki láta heita hluti snerta þá hluta
heimilistækisins sem eru úr plasti.
• Ekki setja gosdrykki í frystihólfið. Við það
myndast þrýstingur innan í drykkjarílátinu.
• Ekki nota heimilistækið til að geyma
eldfimar lofttegundir eða vökva.
• Setjið ekki eldfim efni eða hluti bleytta með
eldfimum efnum í, nálægt, eða á
heimilistækið.
ÍSLENSKA
87

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents