Bosch Intuvia 100 Operating Instructions Manual page 73

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 11
Kveikt/slökkt á hjólatölvunni
Kveiktu á rafhjólinu.
Þegar kveikt er á hjólatölvunni verður hún að vera í
festingunni. Ýtt er sjálfkrafa á tengið fyrir hjólatölvuna (4).
Kveiktu á stjórnbúnaðinum og hreyfðu rafhjólið dálítið.
Hægt er að slökkva á hjólatölvunni með eftirfarandi hætti:
– Ýttu á hnappinn til að kveikja/slökkva á stjórnbúnaðinum
til að slökkva á rafhjólinu.
Þá er einnig slökkt á hjólatölvunni.
– Taktu hjólatölvuna úr festingunni.
Hjólatölvan slekkur sjálfkrafa á sér eftir 60 sekúndur.
Rafmagnstenging hjólatölvunnar
Hjólatölvan fær rafmagn úr CR2450-hnapparafhlöðu.
Skipt um hnapparafhlöðu (sjá mynd C)
Þegar hnapparafhlaða hjólatölvunnar er við það að tæmast
birtist samsvarandi tilkynning í hjólatölvunni. Taktu lokið af
rafhlöðuhólfinu (2) með skrúfjárni (12), taktu gömlu
rafhlöðuna úr og settu nýja rafhlöðu af gerðinni CR2450 í.
Hnapparafhlöður sem Bosch mælir með eru fáanlegar hjá
söluaðilum reiðhjóla.
Þegar hnapparafhlaðan er sett í skal gæta þess að áletrunin á
henni snúi upp og að þéttigúmmíið (14) sé rétt staðsett.
Lokaðu rafhlöðuhólfinu og settu hjólatölvuna í festinguna.
Hleðsluvísir fyrir rafhlöðu rafhjólsins
Hjólatölvan sýnir hleðsluna á rafhlöðu rafhjólsins í
prósentum. Þegar hleðslan fer niður fyrir 30% eða 10%
birtist tilkynning einu sinni. Hægt er að staðfesta
tilkynninguna eða hún hverfur sjálfkrafa eftir 5 sekúndur.
Notkun
Bluetooth®-hnappurinn (1) hefur mismunandi eiginleika: Ef
hjólatölvan hefur verið tengd við stjórnbúnað og er tekin úr
festingunni er hægt að skipta milli skjámynda innan
60 sekúndna. Það er gert með því að ýta á Bluetooth®-
hnappinn (1). Að því loknu er hjólatölvan sett í biðstöðu.
Athugaðu: Ef þú munt ekki nota rafhjólið í nokkrar vikur
skaltu taka hjólatölvuna úr festingunni og setja hjólatölvuna í
geymslustillingu. Til þess skaltu halda Bluetooth®-
hnappinum (1) inni í 8–11 sekúndur.
Þegar hjólatölvan er sett aftur í festinguna og rafhjólið er
hreyft er hjólatölvan tekin sjálfkrafa úr geymslustillingu.
Endurstillingarhnappurinn (5) er notaður til að endurstilla
hjólatölvuna á verksmiðjustillingar og eyða öllum tengingum.
Hægt er að stjórna hjólatölvunni með einhverjum af
eftirfarandi stjórnbúnaði. Upplýsingar um virkni hnappana á
stjórnbúnaðinum koma fram í eftirfarandi yfirliti.
Valhnappurinn gegnir tvenns konar hlutverki eftir því hversu
lengi honum er haldið inni.
Bosch eBike Systems
Þriggja hnappa stjórnbúnaður
Fimm hnappa stjórnbúnaður
Flett til vinstri (fimm hnappa stjórnbúnaður)
Flett til hægri (fimm hnappa stjórnbúnaður)
Stuðningsþrepið hækkað
Stuðningsþrepið lækkað
Valhnappur (ýtt)
Valhnappur (haldið inni > 1 sek.)
Athugaðu: Allar myndir af notendaviðmótinu og vísanir í
texta í notendaviðmótinu á næstu síðum miðast við
núverandi útgáfu hugbúnaðarins. Þegar hugbúnaðurinn er
uppfærður getur verið að minniháttar breytingar verði á
myndrænni framsetningu og texta í notendaviðmótinu.
Athugaðu: Allt eftir birtuskilyrðum hverju sinni getur verið í
boði baklýsing sem kveikt er á með því að ýta á hnapp. Hægt
er að stilla hversu lengi er kveikt á lýsingunni.
Skjámyndir og stillingar í
hjólatölvunni
Upplýsingar um hraða og vegalengd
Hraðamælirinn sýnir hraðann sem hjólið er á.
Í upplýsingareitnum – sem sýnir bæði texta og gildi – er hægt
að velja um að sýna eftirfarandi upplýsingar:
– <Distance>: Ekin vegalengd frá síðustu endurstillingu
– <Riding time>: Aksturstími frá síðustu endurstillingu
– <Time>: Klukkan
– <Range>: Áætlað drægi á hleðslunni sem er eftir á
rafhlöðu hjólsins (miðað við að skilyrði á borð við
stuðningsþrep, akstursleið o.s.frv. haldist óbreytt)
– <Avg. Speed>: Meðalhraði frá síðustu endurstillingu
– <Max. Speed>: Hámarkshraði frá síðustu endurstillingu
Íslenska – 3
0 275 007 3BI | (03.02.2023)

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Bhu3200

Table of Contents