Umhirða Og Hreinsun - IKEA DJUPFRYSA Manual

Hide thumbs Also See for DJUPFRYSA:
Table of Contents

Advertisement

Available languages

Available languages

ÍSLENSKA
Umhirða og hreinsun
Innra byrði hreinsað
Áður en heimilistækið er notað í fyrsta sinn,
skal þvo innri og alla innri fylgihluti með
volgu vatni og hlutlausri sápu til að losna við
dæmigerða lykt af nýrri vöru og þurrka svo
vandlega.
VARÚÐ! Ekki nota þvottaefni,
slípiduft, klór eða olíublönduð
hreinsiefni, þar sem það skemmir
áferðina.
VARÚÐ! Aukahlutir og hlutar
heimilistækisins eru ekki ætlaðir
fyrir uppþvottavélar.
Reglubundin hreinsun
Hreinsa þarf búnaðinn reglulega:
1. Hreinsaðu innra byrðið og aukahluti með
volgu vatni og hlutlausri sápu.
2. Skoðaðu hurðarþéttingar reglulega og
strjúktu af þeim svo þær séu hreinar og
lausar við óhreinindi.
3. Skolaðu og þurrkaðu vandlega.
Affrysting frystisins
VARÚÐ! Aldrei nota beitt
málmverkfæri til að skrapa hrím
úr eiminum þar sem þau geta
skemmt hann.
Notaðu ekki vélrænan búnað eða
aðrar aðferðir til að hraða
þíðingarferli, annan en þann sem
framleiðandinn mælir með.
Um 12 klukkustundum fyrir
þíðingu skaltu stilla á lægra
hitastig til þess að byggja upp
fullnægjandi kuldaforða ef
einhver truflun skyldi verða á
aðgerð.
Eitthvað magn af hrími mun alltaf myndast á
frystihillunum og í kringum efsta hólfið.
Affrystu frystinn þegar hrímlagið er orðið 3-5
mm þykkt.
1. Slökktu á heimilistækinu eða taktu það
úr sambandi við rafmagnsinnstunguna á
veggnum.
2. Fjarlægðu allan mat sem hefur verið
geymdur og láttu á svalan stað.
VARÚÐ! Ef hitastig frosins
matar hækkar meðan á
þíðingu stendur getur það
minnkað geymsluþol hans.
Ekki snerta frosnar vörur með
blautum höndum. Hendur
geta frosið við vörurnar.
3. Láttu hurðina standa opna. Verðu gólfið
gegn vatni frá þíðingunni, t.d. með klút
eða flötu íláti.
4. Til að hraða þíðingunni skaltu setja pott
af volgu vatni í frystihólfið. Auk þess
skaltu fjarlægja ísstykki sem brotna af
áður en affrystingunni lýkur. Notaðu
íssköfuna sem fylgir með til þess.
5. Þegar þíðingunni er lokið skal þurrka
hólfið vel að innan. Geymdu íssköfuna til
notkunar seinna.
6. Kveiktu á heimilistækinu og lokaðu
hurðinni.
7. Stilltu hitastillinn þannig að
hámarkskæling náist og leyfðu tækinu að
ganga í að minnsta kosti 3 klukkustundir
áður en þessi stilling er notuð.
Aðeins þá skal setja matvæli aftur í
frystihólfið.
Tímabundið ekki í notkun
Þegar heimilistækið er ekki í notkun til lengri
tíma, skal grípa til eftirfarandi ráðstafana:
1. Aftengja tækið frá rafmagni.
2. Fjarlægja allan mat.
3. Affrystu heimilistækið.
4. Hreinsa heimilistækið og alla aukahluti
þess.
5. Hafa hurðina opnar til að koma í veg fyrir
að vond lykt myndist.
36

Advertisement

Chapters

Table of Contents
loading

Table of Contents