Fyrir Notkun - Toolson PRO-SB 750 Operating Instructions Manual

Electronic hammer drill
Hide thumbs Also See for PRO-SB 750:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 10
Anleitung PRO_SB_750_SPK7:_
IS

5. Fyrir notkun

Gangið úr skugga um að spenna rafrásarinnar sem
nota á sé sú sama og gefin er upp í upplýsingarskilti
tækisins.
Takið tækið ávallt úr sambandi við straum á meðan
að tækið er stillt.
5.1.Aukahaldfang sett á vélina
(myndir 2-3 / staða 7)
Aukahaldfangið (7) veitir betra hald á borvélinni á
meðan að hún er notuð sem höggborvél. Notið því
tækið ekki án haldfangsins.
Haldfangið (7) er fest á hús vélarinnar með klemmu.
Klemman festist með því að snúa haldfanginu
réttsælis. Með því að snúa haldfanginu rangsælis er
haldfangið losað aftur.
Nú verður að festa aukahaldfangið (7) á vélina. Til
þess verður að opna festingu haldfangsins
nægilega mikið þannig að það renni yfir
patrónuna (1) og á sinn stað.
Eftir að búið er að smeygja haldfanginu (7) á sinn
stað er því snúið þannig að það sé í þægilegri
stöðu til vinnu.
Nú er haldfanginu snúð réttsælis þar til að
haldfangið er orðið fast.
Haldfangið (7) er ætlað fyrir rétthenda og
ranghenda notendur.
5.2 Dýptartakmörkun sett á tækið og hún stillt
(mynd 4 / staða 2)
Dýptartakmarkarinn (2) er festur með klemmu á
aukahaldfangið (7). Klemman er hér einnig fest eða
losuð með því að snúa haldfanginu.
Losið klemmuna og rennið dýptartakmarkara (2) í
þar til gerða festingu í haldfanginu.
Setjið nú takmarkarann (2) á í rétta átt.
Dragið út takmarkarann þar til að rétta dýptin er
innstillt.
Snúið haldfanginu (7) aftur þar til að það er orðið
fast.
Borið nú gat í verkstykkið þar til að
dýptartakmararinn (2) snertir yfirboð þess.
5.3 Notkun bors (mynd 5)
Takið tækið ávallt úr sambandi við straum áður en
að tækið er stillt á einhvern hátt.
Notið dýptartakmarkara (2), losið hann eins og
liður 5.2 sýnir og rennið honum í áttina að
haldfanginu. Svona er hægt að komast betur að
patrónunni (1).
Höggborvélin er búin sjálfherðandi patrónu (1).
Snúið patrónunni (1) þannig að losni um borgatið.
Borgatið verður að vera nægilega stórt til þess að
borinn komist inní það.
80
30.07.2008
15:04 Uhr
Seite 80
Veljið réttan bor. Stingið verkfærinu eða bornum
eins langt og hann kemst inn í patrónuna.
Herðið patrónuna (1). Athugið hvort að borinn sé
vel fastur í patrónunni (1).
Athugið reglulega hvort að borinn eða ítólið sé
fast í patrónunni (takið tæki úr sambandi við
straum!).
6. Notkun
6.1 Höfuðrofi (mynd 6 / staða 5)
Setjið rétta borinn í patrónuna (sjá lið 5.3).
Tengið tækið við straum.
Leggið borvélina beint að þeim stað sem að bora
á í.
Kveikt á tæki:
Þrýstið á höfuðrofann (5)
Samfleytt notkun:
Festið inni höfuðrofa (5) með höfuðrofalæsingu (4).
Slökkt á tæki:
Þrýstið stutt á höfuðrofann (5).
6.2 Snúningshraði stilltur (mynd 6 / staða 5)
Hægt er að breyta snúningshraða vélarinnar
stiglaust á meðan að hún er í notkun.
Með því að þrýsta höfuðrofanum (5) mismunandi
langt inn er snúningshraðanum breytt.
Réttur snúningshraði: Rétti snúningshraði fer eftir
því hvaða efni er notað, hvernig unnið er með
efnið og hvaða bor er notaður.
Höfuðrofa (5) þrýst stutt inn: lítill snúningshraði
(passar fyrir litlar skrúfur og mjúk verkstykki)
Höfuðrofa (5) þrýst langt inn: hærri snúningshraði
(passar fyrir stórar/langar skrúfur og hörð
verkstykki)
Ráð: Byrjið að bora með litlum snúningshraða. Aukið
síðan snúningshraðann jafnt og þétt.
Kostir:
Betra er að stjórna bornum þannig og hann
rennur ekki eins auðveldlega til.
Hægt er að forðast að yfirborð brotni (til dæmis
flísar).

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

01018

Table of Contents