KitchenAid 5K45 Series Use And Care Manual page 152

Hide thumbs Also See for 5K45 Series:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
ÁBYRGÐARSKILMÁLAR KITCHENAID
(„ÁBYRGÐ")
KitchenAid Europa, Inc., Nijverheidslaan 3, Box 5, 1853 Strombeek-Bever, Belgíu („ábyrgðaraðili") veitir lokakaupanda, sem
er neytandi, ábyrgð samkvæmt eftirfarandi skilmálum.
Ábyrgðin er viðbót við lögbundin ábyrgðaréttindi lokakaupanda gagnvart seljanda vörunnar og hefur engar takmarkanir eða
áhrif á þau. Í stuttu máli kemur fram í lögum nr. 48/2003 um neytendakaup að vörur verði að vera í því ástandi sem þeim er
lýst, hæfar fyrir tilgang sinn og af fullnægjandi gæðum. Ef í ljós kemur að varan er gölluð verður neytandi að tilkynna seljanda
um gallann án óþarfa tafa. Neytandi hefur aldrei skemmri tíma en tvo mánuði til að leggja fram kvörtun.
Lög númer 48/2003 um neytendakaup skýra einnig frá ákveðnum ráðstöfunum sem neytandi getur notað til að vernda rétt
sinn, svo sem:
- Að halda aftur af greiðslu.
- Val á milli leiðréttingar eða nýrrar afhendingar.
- Beiðni um afslátt.
- Beiðni um riftun.
- Bótakröfur.
Þessi réttindi eru háð ákveðnum undantekningum. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á vefsíðu Neytendastofunnar á
www.neytendastofa.is
eða með því að hringja í 00354 510 1100.
1) UMFANG OG SKILMÁLAR ÁBYRGÐARINNAR
a) Ábyrgðaraðili veitir ábyrgð á vörunum sem eru taldar upp í hluta 1.b) sem neytandi hefur keypt frá seljanda eða fyrirtæki
frá KitchenAid-samsteypunni í landi innan evrópska efnahagssvæðisins, eða í Moldóvu, Svartfjallalandi, Rússlandi, Sviss eða
Tyrklandi.
b) Ábyrgðartímabilið fer eftir vörunni sem er keypt og er sem hér segir:
- 5KSM125 - 5KSM200 Full ábyrgð í fimm ár frá kaupdegi.
- 5K45, 5KSM45 - 5KSM100 Full ábyrgð í tvö ár frá kaupdegi.
c) Ábyrgðartímabilið hefst á kaupdegi, þ.e. daginn sem kaupandi keypti vöruna frá söluaðila eða fyrirtæki frá KitchenAid-
samsteypunni.
d) Ábyrgðin tryggir að varan skuli vera gallalaus.
e) Ábyrgðaraðili skal veita neytanda eftirfarandi þjónustu undir þessari ábyrgð, eftir ákvörðun ábyrgðaraðila, ef galli kemur í ljós
á ábyrgðartímabilinu:
- Viðgerð á gölluðu vörunni eða íhlutnum, eða
- Skipti á gölluðu vörunni eða íhlutnum fyrir nýja. Ef varan er ekki lengur í boði er ábyrgðaraðila heimilt að skipta út vörunni fyrir
jafn dýra eða dýrari vöru.
f) Ef neytandi vill leggja fram kröfu undir ábyrgðinni verðu hann að hafa samband við innlendan þjónustuaðila KitchenAid á
www.kitchenaid.is
(Netfang:
Inc. Nijverheidslaan 3, Box 5, 1853 Strombeek-Bever, Belgíu.
g) Ábyrgðaraðili skal bera kostnað vegna viðgerðar ásamt varahlutum og sendingarkostnað vegna afhendingar á gallalausri
vöru eða íhlut. Ábyrgðaraðili skal einnig bera sendingarkostnað vegna skila á gölluðu vörunni eða íhlutnum ef ábyrgðaraðilinn
eða innlendi KitchenAid þjónustuaðilinn bað um að gölluðu vörunni eða íhlutnum yrði skilað. Hins vegar skal neytandi bera
kostnað vegna viðeigandi umbúða fyrir örugg skil á gölluðu vörunni eða íhlutnum.
h) Neytandi verður að framvísa kvittun eða reikning sem sönnun fyrir kaupum á vörunni ef hann vill leggja fram kröfu undir
ábyrgðinni.
2) TAKMARKANIR Á ÁBYRGÐINNI
a) Ábyrgðin á eingöngu við um vörur sem eru notaðar í heimilistilgangi og ekki um faglegar vörur eða vörur notaðar í
atvinnuskyni.
b) Ábyrgðin á ekki við um eðlilegt slit, ranga notkun eða misnotkun, ef ekki er farið eftir notkunarleiðbeiningunum, ef varan er
notuð við ranga rafspennu, ef uppsetning eða notkun brjóta gegn viðeigandi reglugerðum um rafmagn, og ef óhóflegt afl er
notað (t.d. högg).
c) Ábyrgðin á ekki við ef vörunni hefur verið breytt eða skipt um spennu, t.d. ef 120 V vörum er breytt til að nota 220-240 V.
d) Veitt þjónusta samkvæmt ábyrgðinni framlengir ekki ábyrgðartímabilið né heldur markar hún upphaf nýs ábyrgðartímabils.
Ábyrgðartímabilinu fyrir ísetta varahluti lýkur á sama tíma og ábyrgðartímabilið fyrir alla vöruna.
Þjónustuaðilar KitchenAid geta enn aðstoðað neytendur með spurningar og veitingu upplýsinga eftir að ábyrgðin er útrunnin,
eða fyrir vörur sem falla ekki undir ábyrgð. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vefsíðu okkar:
VÖRUSKRÁNING
Skráðu nýja KitchenAid tækið þitt núna:
KITCHENAID og hönnun hrærivélarinnar eru vörumerki í Bandaríkjunum og annars staðar.
152
W11555951D.indb 152
W11555951D.indb 152
sala@rafland.is
; Símanúmer +354 520 7900) eða beint við ábyrgðaraðilann í KitchenAid Europa,
http://www.kitchenaid.eu/register
©2022 Öll réttindi áskilin.
www.kitchenaid.eu
5/20/2022 6:46:36 PM
5/20/2022 6:46:36 PM

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

5ksm45 series5ksm200 series

Table of Contents