Umhirða Og Hreinsun - Electrolux LNB1LE34XR User Manual

Table of Contents

Advertisement

Available languages

Available languages

7. UMHIRÐA OG HREINSUN
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um öryggismál.
7.1 Innra byrði hreinsað
Áður en heimilistækið er notað í fyrsta sinn
skal þvo innra byrðið og alla innri fylgihluti
með volgu vatni og hlutlausri sápu til að losna
við dæmigerða lykt af nýrri vöru og þurrka
síðan allt vandlega.
VARÚÐ!
Ekki nota þvottaefni, slípiduft, klór eða
olíublönduð hreinsiefni, þar sem það
skemmir áferðina.
VARÚÐ!
Aukahlutir og hlutar heimilistækisins eru
ekki ætlaðir fyrir uppþvottavélar.
7.2 Reglubundin hreinsun
Hreinsaðu búnaðinn reglulega:
1. Hreinsaðu innra byrðið og fylgihluti með
volgu vatni og hlutlausri sápu.
2. Skoðaðu hurðarþéttingar reglulega og
strjúktu af þeim svo þær séu hreinar og
lausar við óhreinindi.
3. Hreinsaðu þéttinn með bursta að minnsta
kosti tvisvar á ári.
4. Hreinsaðu uppgufunarbúnaðinn reglulega
til að fjarlægja uppsafnað vatn.
5. Skolaðu og þurrkaðu vandlega.
6. Hreinsaðu frárennslisgatið til að koma í
veg fyrir að vatn flæði yfir. Notaðu
þunnan, óbeittan plastpinna.
7.3 Affrysting frystisins
VARÚÐ!
Aldrei nota beitt málmverkfæri til að
skrapa hrím úr eiminum þar sem þau
geta skemmt hann.
Notaðu ekki vélrænan búnað eða aðrar
aðferðir til að hraða þíðingarferli, annan
en þann sem framleiðandinn mælir með.
Mælt er með því að skrapa hrímið í burtu
með plastsköfunni.
Um 12 klukkustundum fyrir þíðingu skaltu
stilla á lægra hitastig til þess að byggja
upp fullnægjandi kuldaforða ef einhver
truflun skyldi verða á aðgerð.
1. Slökktu á heimilistækinu eða taktu það úr
sambandi við rafmagnsinnstunguna á
veggnum.
2. Fjarlægðu allan mat sem er í geymslu,
vefðu nokkrum lögum af dagblöðum utan
um hann og komdu honum fyrir á svölum
stað.
VARÚÐ!
Ef hitastig frosins matar hækkar
meðan á þíðingu stendur getur það
minnkað geymsluþol hans.
Ekki snerta frosnar vörur með
blautum höndum. Hendur geta frosið
við vörurnar.
3. Láttu hurðina standa opna. Verðu gólfið
gegn vatni frá þíðingunni, t.d. með klút
eða flötu íláti.
4. Til að hraða þíðingunni skaltu setja pott af
volgu vatni í frystihólfið. Auk þess skaltu
fjarlægja ísstykki sem brotna af áður en
affrystingunni lýkur.
5. Þegar þíðingunni er lokið skal þurrka
hólfið vel að innan.
6. Kveiktu á heimilistækinu og lokaðu
hurðinni.
7. Stilltu hitastillinn þannig að
hámarkskæling náist og leyfðu tækinu að
ganga í þrjár klukkustundir áður en þessi
stilling er notuð.
ÍSLENSKA
31

Advertisement

Chapters

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Lnb1le34wr

Table of Contents