Electrolux ENC8MD18S User Manual page 92

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
4.5 Kveikt á kælinum
Til að kveikja á kælinum:
1. Ýttu á og haltu inni hnappinum fyrir
hitastig kælis í 5 sekúndur.
Skjárinn sýnir blikkandi
2. Kveikt er á kælihólfinu og fyrri hitastillingu
er stillt á ný.
Til að stilla hitastigið, sjá „Hitastilling".
4.6 ECO aðgerð
ECO aðgerðin stillir á rétt hitastig til að tryggja
sem best endingu matvæla um leið og
orkunotkun er lágmörkuð.
1. Til að virkja aðgerðina skaltu ýta á ECO-
hnappinn.
Hitastigið í kælinum er stillt á +4°C og -18°C í
frystinum.
2. Til að afvirkja aðgerðina skaltu ýta á aftur
á ECO hnappinn eða velja annað hitastigi
til að stilla á (sjá „Hitastilling").
Þegar ECO aðgerðin hefur verið virkjuð er
hitastigið í kælinum stillt á +2°C og hitastigið í
frystinum á -20°C.
EfECO er virkjað þá afvirkjastExtra Cool
ogExtra Freeze aðgerðirnar.
ECOMETER vísirinn sýnir núverandi
orkunotkun heimilistækisins. Ef þrjú strik
lýsa er mest orkusparandi uppstillingin í
notkun.
4.7 Extra Cool aðgerð
Með Extra Cool aðgerðinni getur þú kælt
niður mikið magn af matvælum með hraði,
t.d. eftir að þú fórst að kaupa inn, án þess að
maturinn sem fyrir er í kælinum hitni.
Til að virkja aðgerðina skaltu ýta á Extra Cool
hnappinn.
Extra Cool vísirinn lýsir. Þegar kveikt er á
Extra Cool aðgerðinni gæti viftan farið
sjálfkrafa í gang.
92
ÍSLENSKA
.
Þessi aðgerð stöðvast sjálfkrafa eftir u.þ.b. 6
klst. Þegar slökkt er á aðgerðinni mun
slokkna á Extra Cool vísinum.
Ýttu á Extra Cool hnappinn til að afvirkja
Extra Cool aðgerðina áður en hún stöðvast
sjálfkrafa.
Til að stilla á annað hitastig í kælinum
skaltu slökkva á Extra Cool aðgerðinni og
fara eftir „Hitastilling".
4.8 Extra Freeze aðgerð
Extra Freeze aðgerðin er notuð til að forfrysta
og hraðfrysta í röð í frystihólfinu. Þessi
aðgerð hraðar frystingu ferskra matvæla og
ver um leið matvæli sem þegar eru geymd
gegn óæskilegri hitnun.
Til að frysta fersk matvæli skal virkja
Extra Freeze aðgerðina minnst sólarhring
áður en maturinn sem á að forfrysta er
settur í frystihólfið.
Til að virkja þessa aðgerð skaltu ýta á Extra
Freeze hnappinn.
Extra Freeze vísirinn lýsir. Extra Freeze
aðgerðin afvirkjast sjálfkrafa eftir að hámarki
52 klukkustundir.
Ýttu á Extra Freeze hnappinn til að afvirkja
Extra Freeze aðgerðina áður en hún stöðvast
sjálfkrafa.
4.9 Aðvörun um háan hita
Þegar hitastigið hækkar í frystihólfinu (til
dæmis vegna þess að rafmagn hafði áður
farið af) mun viðvörunarvísirinn blikka,
hitastigsvísir frystisins sýnir H° og hljóðið fer
á.
Til að afvirkja viðvörunina skaltu ýta á
einhvern hnapp.
Viðvörunarvísirinn og hljóðið slokkna. Vísirinn
fyrir hitastig frystis sýnir H° í fimm sekúndur
áður en hann sýnir hitastigið í frystinum á ný.

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents