Sony Xperia M2 Information page 365

Umts hspa band 1 5 8 gsm gprs/edge 850/900/1800/1900 lte band 1 3 5 7 8 20
Hide thumbs Also See for Xperia M2:
Table of Contents

Advertisement

Þessi gerð uppfyllir alþjóðlegar
viðmiðunarreglur um áhrif frá
útvarpsbylgjum.
Farsíminn þinn sendir frá sér og tekur á móti útvarpsbylgjum.
Hann er hannaður til að fara ekki yfir það hámark útvarpsbylgna
sem mælt er með í alþjóðlegum viðmiðunarreglum. Þessar
viðmiðunarreglur voru þróaðar af ICNIRP, sjálfstæðri
vísindastofnun, og þar er að finna öryggisatriði sem ætlað er að
vernda alla, án tillits til aldurs eða heilsufars.
Þessi sími hefur verið prófaður með tilliti til snertingar við
líkamann. Hann uppfyllir viðmiðunarreglur um útvarpsbylgjur
þegar hann er notaður með aukahlut sem inniheldur engan málm
og síminn er staðsettur að lágmarki 15 mm frá líkamanum.
Notkun annarra aukahluta uppfyllir hugsanlega ekki
viðmiðunarreglur um útvarpsbylgjur.
Þessar viðmiðunarreglur notast við mælieininguna SAR
(specific absorption rate). Hámark SAR fyrir farsíma er 2 W/kg og
hæsta SAR gildið fyrir þetta tæki þegar það var prófað upp við
eyra reyndist vera 0,535 W/kg (10g)*. Þar sem farsímar bjóða
upp á fjölda notkunarmöguleika er einnig hægt að nota þá í
öðrum stellingum, t.d. láta þá liggja upp við líkamann. Í þeim
tilvikum sem síminn er borinn upp við líkamann er hæsta SAR
gildið sem mældist við prófun 0,711 W/kg (10g)*.
SAR gildið er mælt á hæsta sendistigi tækisins. Raunverulegt
SAR gildi þessa tækis meðan á notkun stendur er að jafnaði
undir því sem gefið er upp hér að ofan. Þetta er sökum sjálfvirkra
breytinga á orkustigi tækisins sem tryggja að það noti einungis
lágmarksstyrk til að tengjast við símkerfið.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur gefið út þá
yfirlýsingu að samkvæmt tiltækum vísindaupplýsingum þá bendi
ekkert til þess að þörf sé á sérstökum varúðarráðstöfunum við
notkun farsímatækja. Stofnunin ráðleggur þeim sem vilja draga úr
mögulegum áhrifum útvarpsbylgna að takmarka lengd símatala
eða nota handfrjálsan búnað til að halda farsímanum frá höfði og
líkama.
14

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

D2303

Table of Contents