Umhirða Og Hreinsun; Þrif Hraðsuðuketils Og Undirstöðu; Hraðsuðuketillinn Afkalkaður; Sían Hreinsuð - KitchenAid 5KEK1522 Manual

Hide thumbs Also See for 5KEK1522:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
UMHIRÐA OG HREINSUN
Þrif hraðsuðuketils og undirstöðu
MIKILVÆGT:
Fyrir hreinsun skal
alltaf aftengja hraðsuðuketilinn frá
rafmagnsinnstungu og ganga úr skugga
um að ketillinn hafi kólnað til fulls.
Hraðsuðuketillinn afkalkaður
Vatn
Hvítvínsedik
Kalsíumútfellingar kunna að myndast á
málmhlutunum inni í hraðsuðukatlinum. Til að
ná sem bestum afköstum úr hraðsuðukatlinum
þínum skal þrífa hann reglulega. Þriftímabilið
fer eftir hörku vatnsins sem þú setur
í hraðsuðuketilinn þinn. Mælt er með notkun
afkölkunarefnis sem fá má í verslunum.
Sían hreinsuð
Fjarlægðu síuna úr hraðsuðukatlinum
(sjá „Sían sett í og tekin úr"), skolaðu
síðan undir rennandi vatni.
Þvoðu hraðsuðuketilinn og undirstöðuna
í höndunum með rökum klút. Þurrkaðu og
pússaðu með mjúkum klút. Ekki er mælt
með grófum klútum eða og hreinsiefnum
af neinu tagi.
Ef afkölkunarefni sem fæst í verslunum er
ekki tiltækt:
1. Fylltu vatnsketilinn af hvítvínsediki upp
að MIN (0,25 L) merkinu.
2. Bættu við vatni upp að 0,75 L merkinu.
3. Láttu sjóða og leyfðu að standa yfir nótt.
4. Helltu lausninni úr hraðsuðukatlinum.
5. Fylltu hraðsuðuketilinn af vatni, láttu sjóða
og helltu vatninu úr. Endurtaktu þetta
skref tvisvar. Hraðsuðuketillinn er nú
tilbúinn til notkunar.
ATH.: Ef kalsíumútfellingar eru eftir í síunni
skal láta hana standa yfir nótt í lausn af vatni
og hvítvínsediki. Skolaðu síuna vandlega og
settu hana aftur í hraðsuðuketilinn.
133

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents